18 Jan 2009

fyrst kemur MR, MR, MR!

cösu-pógó
skyndipróf í stærðfræði
söngkeppnin
rafræn æfing í jarðfræði
ritgerð um vatn á mars
lespróf úr íslandsklukkunni
tebó
-voða pressa ha?

Ég er komin með svo alveg nóg af þessu. Mér finnst bara allt á þessum lista ZERO interesting. Hvernig væri að vera í skóla sem væri ZERO leiðinlegur? lol sko. Ég sjúklega fyndin með svona kók síró brandara fattaru. (*)

Þetta er ekkert persónulegt gagnvart MR. Hann var gg fun einu sinni og ég var alltaf sko OMG það er svo gg mikið að gera. Ekki lengur, ekkert gaman lengur. Nema þú sért gæi í 6b og ert í tóga og allar busastelpurnar hlaupa á eftir þér. Sjett hvað ég er abbó. Ég skiluru geggjað kjút og strákarnir bara hot fyrir litlu busachicks og ég fæ bara ZERO athygli. Af hverju ekki strákar sem hugsa ZERO um kynlíf? lol sko. (*)

Er að fara EIN til kóngsins köb á fimmtudaginn næsta til að taka SAT svo ég geti sótt um skóla í US. Nú langar mig bara að fara til US. Mig langar geggjað í skóla sem er mega töff í NYC og Calvin Klein var í, en umsagnarfresturinn er liðinn. búhú, þarf að finna annan, eða fara inn um julen. Af hverju ekki FIT með ZERO liðinn umsagnarfrest? ok alveg ekki lol. Því þessi kók síró brandari var alveg ekki fyndinn (hinir voru snilld).

So sorry Sigga Hlí, en mér finnst það meira spennó en reglan um fjarlægð punkts frá línu.


kv. dist(Hrefna, lærdómur) stefnir á óendanlegt.

Hefuru lent í því að einhver sem þú þekkir ekki neitt, en veist einhvern veginn alveg hver er t.d. því þið eigið kannski nokkra sameiginlega vini og þú ert alltaf að sjá viðkomandi á einhverjum facebook-myndum án þess að vera eitthvað sérstaklega að spá í því?
Ok, kannski á ég bara ekkert líf.
Hefuru svo lent í því að sjá þessa manneskju sem þú þekkir sko ekkert og þú ferð eiginlega bara hjá þér því þér líður eins og þú hafir verið að njósna um viðkomandi eða þú hefur kannski heyrt mikið um hann/hana frá vinum þínum og veist því óvart bara sjúklega mikið um þessa manneskju?
Ég lenti í þessu um daginn. Það er óþægilegt. Ég hef ekki farið á facebook síðan. Nema smá áðan.

3 comments:

birta said...

já ég kannast við stalker syndromið.
ég kannast líka við MR hatrið.
síðan hvenær voru allir þessir dweeby bekkjarbræður mínir svona hot stuff? HOW AND WHEN DID THIS HAPPEN!?

love b

Unknown said...

Mjög óþægilegt, eins og maður sé einhver spæjari!

Þeir hafa alltaf verið það. Og núna er kominn her af busastelpum að taka þá frá okkur...!

Smá kaldó skiluru, það er bara soldið fyndið að vera á busaballi og sjá kannski gæja sem er kannski alveg ZERO varið í en busastelpurnar komnar í hözzlgírinn BARA því hann klæðist tóga.

icalndicstililsta said...

ég gat ekki annað en brosað Hrefna :)
við höfum allavega sæta Hag kennarann fram á vor :P